Helgi Jónsson grasafræðingur (1867-1967): Gróðrarsaga hraunanna á Íslandi, Skírnir, apríl 1906.
---
Gróður er styttra og hagfeldara í máli en gróðrarlag eða gróðrarfar, og er
það orð haft hér í sömu merkingu og vegetatio
á útlendu máli. Sú þýðing þess er og alvanaleg í mæltu máli. Er því með öllu
óþarft að skýra frekar, hvað falið er í orðinu gróður.
Gróðurinn á sína sögu, og gróðursaga hinna ýmsu landa og hafa er með ýmsum
hætti, og mjög svo komin undir lífsskilyrðum þeim, sem fyrir hendi eru.
Gróðrarsagan segir frá »landnámi« plantnanna og skýrir oss frá, hverjar
tegundir ber fyrst að hinum beru landflákum, hvernig þær þróast og greiða götu
þeirra tegunda, er síðar koma. Hún er í fáum orðum: þróunarsaga hinna
fjölbreyttu plöntufélaga, er byggja jörðina nú á dögum.
Sem stendur er ekki mögulegt að rita gróðrarsögu Íslands, því að gróður
landsins er ekki ennþá rannsakaður til hlítar. Ennþá er oss með öllu ókunnugt
um, hverjar leifar af hinum fyrsta gróðri eftir síðustu ísöld kunna að finnast
í leirlögum og jökulurðum.[*] Fyrst um sinn verðum vér því að láta oss nægja,
að drepa á ýmis atriði, er snerta gróðrarsögu landsins. Eitt af þessum atriðum
er gróðrarsaga hraunanna, er nú má kalla nægilega kunna í öllum aðalatriðum.
I. Gróðrarþróun í hraunum.
Hraunin verða til á þann hátt, að glóandi hraunstraumur rennur úr gígnum og
yfir landið umhverfis. Þá kólnar hraunið og storknar, og er lögunin á yfirborði
hraunsins mest undir því komin, hvernig og hve fljótt það storknar. Eftir lögun
yfirborðsins greina menn á Íslandi milli tvenns konar hrauna, er nefnd eru
apalhraun og helluhraun. Apalhraunin líta út sem óskipulegar urðaröldur, en
helluhraunin eru miklu sléttari og í þeim eru víða á allstórum spildum sléttar
klappir eins og nafnið bendir á, en á milli óskipulegar dældir og geilar. Eru
helluhraunin miklu gróðursælli en apalhraunin, meðfram af þeirri ástæðu, að
vatnið á örðugra með að síga gegn um þau.
Nýrunnið hraun er með öllu eyðimörk og enginn gróður byrjar fyrr en
yfirborðið er storknað og kalt. Er hraunið þá mjög svo óvistlegur bústaður
fyrir plöntur, því að þar er alls enginn jarðvegur. Háplöntum er því með öllu
ómögulegt að nema þar land að svo stöddu. En bót er það í máli, þótt hraunið sé
jarðvegslaust, að yfirborð steinanna er hrufótt. Er það alsett skörpum broddum,
en á milli þeirra eru smáholur og skorur. Stormarnir á Íslandi þyrla venjulega
upp ryki, staðnæmist það miklu fremur í hinu hrufótta yfirborði hraunklettanna
en á sléttum blágrýtisklettum. Um síðir kemur og jarðvegur í hraunin; verður
það með ýmsu móti, en tíðast er, að plöntugróðurinn sjálfur gerir jarðveginn og
lágplönturnar greiða götu háplantnanna. Skal nú farið um það nokkrum orðum.
Fyrstu landnemar hraunanna verða að vera þannig gerðir, að þeir geti lifað
á beru berginu, af því að enginn jarðvegur er þar fyrir. Ýmsar lágplöntur eru
þannig gerðar, svo sem þörungar (algæ),
fléttur eða skófir (lichenes) og sumar mosategundir. Þörungar eru þó fremur
sjaldgæfir í hraunum og látum vér því nægja að nefna þá. Fléttur og mosar eru
alstaðar í klettum, en venjulegast eru flétturnar þó frumbyggjar þar.
Ýmsar fléttutegundir eru alkunnar alþýðu á Íslandi, svo sem litunarmosi,
geitaskóf, fjallagrös, hreindýramosi, tröllagrös o.s.frv. Fjallagrösin og
hreindýramosinn vaxa þó ekki á klettum, en eru algeng í mosaþembum, einkum til
fjalla. Litunarmosinn og geitaskófir eru algengar á steinum, en teljast þó ekki
til frumbyggja hraunanna. Fléttur þær, er fyrstar nema land í hraunum, eru að
nokkru leyti svipaðar litunarmosa og er því líkast sem hvítar, gráar, gular,
svartar eða grænleitar skorpur séu á klettunum á víð og dreif.
Flétturnar (skófirnar) teljast til sveppanna, en eru þeim þó frábrugðnar að
því leyti, að þær geta sjálfar unnið fæðu sína úr kolsýru loftsins. Þó er fléttusveppurinn
að því leyti líkur öðrum sveppum, að hann er ekki grænn, og getur því ekki,
fremur en þeir, af sjálfsdáðum fætt sig af kolsýru loftsins. Til þess þarf hann
hjálpar við og hana fær hann hjá örsmáum grænleitum þörungum, er hann þéttar
sig utan um og innilykur þannig í sínum eigin líkama. Svo má að orði kveða, að
fléttusveppurinn hafi þörungana í æfilöngu haldi eða þrælkun og hann lifir af
þeirri fæðu er þær vinna úr kolsýru loftsins. Sjálfur þörungslíkaminn fær enga
meinsemd af þrælkuninni, en þó geta þörungarnir ekki æxlast meðan þeir eru í
haldinu. Þess konar viðbúð, sem hér ræðir um, köllum vér því þrælkun. Líkami
fléttnanna er því samsettur af tveim tegundum, sem meira að segja teljast til
mjög svo ólíkra plöntuflokka, það er að segja svepp og þörungi. Ef fléttusvepparnir
hefðu ekki hina grænu þræla til að vinna fyrir sér, mundu klettar þeir, er
þaktir eru hinum marglita fléttugróðri, vera svo að segja gróðurlausir, því að
svepparnir gætu ekki búið þar hjálparlaust. Líkami flétta þeirra, er
algengastar eru á steinum, er, eins og drepið hefir verið á, líkastur þunnri
skorpu eða skóf á klettinum. Er sú líkamslögun hin hagkvæmasta fyrir plöntur á
skjóllausum klettum.
Fyrir því er auðsætt, að fléttur eru mæta-vel til þess fallnar, að nema
land í hraunum. En hvernig flytjast þær inn í hraunið? Um bert og nýstorknað
hraun er auðvitað engin umferð, og svo mætti að orði kveða, að þar kæmi aðeins
fuglinn fljúgandi; þó er mjög svo ólíklegt, að fuglar flytji frumbyggjana inn í
hraunið, en það er eflaust vindurinn. Stormarnir þyrla upp jarðryki, sópa fræi
og grói af plöntum, er vaxa umhverfis hraunið, og þeyta öllu saman yfir
hraunflákana. Sérstaklega ber þess að gæta, að gró lágplantnanna eru svo lítil
og létt, að ekki þarf hvassan vind til að feykja þeim í hraunið. Gró þeirra
plantna, er geta búið á bergi, dafna og verða að fullorðnum plöntum, en gró eða
fræ þeirra plantna, er þurfa jarðveg, deyja auðvitað á klettinum. Af þeim
plöntum, sem vindurinn flytur í nýstorknað hraun, dafna því aðeins fléttur,
mosar og ölgur, en allar háplöntur deyja, því að hraunið er jarðvegslaust. Þá
höfum vér að nokkru lýst fléttunum, hversu þær eru fallnar til landnáms, og
getið um, hvernig þær flytjast í hraunið; og skal nú drepið á gróðrarsöguna.
1. gróðrarstig. Fléttur og
mosar á við og dreif.
Á fyrsta gróðrarstiginu er hraunið tilsýndar eins og það væri alveg nakið,
en þegar komið er í sjálft hraunið, verðum vér þess fljótt varir, að marglitar
smáskorpur eru á stangli hingað og þangað um nibburnar. Skorpur þessar eru
fyrstu landnemarnir og teljast allar til fléttnanna. Auk þeirra vaxa þar og
órfáar mosategundir, en þær finnast að eins í örsmáum holum á fleti
hraunsteinanna. Meðal hinna fyrstu mosategunda er grámosinn, er síðar nær mjög
mikilli útbreiðslu í hraununum; en á þessu stigi er að eins að sjá einstaka
smátór milli hraunbáranna. Niðri í hraungjótunum finnast og nokkrar
mosategundir, og teljast til skuggamosa, það er að segja mosategunda, sem ekki
þrífast í skarpri birtu. Krakatindshraun í Hekluöræfum er ljósasta dæmi þessa
gróðrarstigs af hraunum þeim, er eg hefi séð. Það hraun brann 1878. Er hraunið
var 23 ára gamalt eða 1901 rannsakaði eg nokkurn hluta þess og fann að öllu
samtöldu 16 tegundir, 12 mosategundir, 3 fléttutegundir og einn þörung. Eflaust
mætti búast við að talsvert meiri gróður væri að finna í 23 ára gömlu hrauni á
láglendinu. Þessi gróður heldur sér í gömlum hraunum, en sést þar að eins á
efstu hraunnibbum eða í gjótum.
Krakatindshraun, mynd frá 2008, ljósmyndari: Geir Sig. |
2. gróðrarstig. Mosaþembur.
Eftir því sem árin líða verða flétturnar tíðari og tíðari og þekja
hraunnibburnar að meira eða minna leyti, og mosatórnar, er voru örlitlar í
upphafi, og að eins milli hraunbáranna, breiðast út meir og meir og verða
smáþúfur víðs vegar á klettunum; víða renna þær saman og þekja þá allstórar spildur.
Að grámosanum kveður langmest allra mosa í hraunum og er hans fyr getið. Er
hann einn meðal hinna allra algengustu mosa á íslandi og vex því nær alstaðar á
steinum, í móum og jafnvel þýfðum mýrum. Mjög fljótt kemur það í ljós í
hraununum, að grámosinn breiðist út miklu fljótara en aðrar mosategundir. Fyrst
koma upp örsmáar tór milli hraunbáranna, eins og getið var, en því næst vaxa
tórnar og verða að mosaþúfum, er breiðast út í allar áttir. Að síðustu renna
þúfurnar saman, og verður þá samloðandi mosaþak yfir stór svæði. Það köllum vér
mosaþembur.
Það er auðvitað fólgið í skapnaðarlagi grámosans, hve vel hann þrífst á
þurrum klettum. Allflestir munu hafa tekið eftir því, að mosaþemburnar eru
grænleitar í rigningatíð, en gráleitar þegar þurrviðri ganga. Orsökin til
litbrigðanna er sú, að loft kemst inn í plöntuna, er vatnið gufar upp. Hið
innilukta loft hylur grænkornin og veldur þannig gráa litnum, en um leið er það
einnig vörn fyrir mosann gegn of miklum þurrki. En er votviðri ganga, sýgur
mosinn í sig svo mikið vatn, að loftið hverfur, og er hann því grænleitur á að
sjá. Þar við bætist og, að grámosanum (og mörgum öðrum mosategundum) er þannig
háttað, að hann getur unnið fæðu sína úr kolsýru loftsins við lægra hitastig en
háplönturnar. Fyrir því er auðsætt, að grámosinn er allra plantna bezt fallinn
til að gera jarðveg í hraunum. Við aldurinn verður sú breyting á mosaþembunni,
að neðsta mosalagið deyr smámsaman og fer að rotna, það er að segja: að
breytast í jarðveg. Í þessum mosajarðvegi er ávalt nokkur raki, jafnvel þó
langvinnir þurrkar hafi gengið, því að efsta mosalagið, eða hin lifandi
mosaþemba, ver hann gegn þurrki. Þannig er mosaþemban farin að breytast í
jarðveg. Mosinn á erfiðara uppdráttar eftir því sem jarðvegurinn eykst, og
stenzt að lokunum ekki samkeppnina við háplönturnar, er koma hópunum saman til
að taka sér bústað í hinum nýja jarðvegi. Svo mætti að orði komast, að
grámosinn gerir jarðveg í hraununum og útrýmir sjálfum sér um leið. Stór svæði
í hinum gömlu hraunum hafa ennþá ekki náð lengra en á þetta stig.
3. gróðrarstig. Lyngheiði.
Þegar er neðsta mosalagið fer að rotna og jarðvegur sezt í hraunið, fer það
að verða byggilegt fyrir háplönturnar, enda fara þær þá að flytjast þangað. En
áður en farið er frekara út í það efni, skal örlítið drepið á, hvernig
háplönturnar komast í hraunið. Vér gátum þess áður, að það væri eflaust
vindurinn, sem flytti lágplöntur í hraunið, og hiklaust má fullyrða, að
vindurinn vinni einna mest að flutningi háplantnanna; en þó munu margar þeirra
berast í hraunið með dýrum, og þar eru fuglarnir eflaust fremstir í flokki.
Þess ber nefnilega að gæta, að þegar er mosaþemban er komin, er hraunið fært
yfirferðar ýmsum dýrum, er á margan hátt geta flutt fræ háplantnanna með sér.
Þess ber og að gæta, að hraunið gengur miklu meira í augu fuglanna eftir að
mosagróðurinn er kominn, því þá hyggja þeir að þar sé björg að finna. Fuglar
bera ýmis fræ með sér og það einkum í maganum, en mörg fræ hafa fræskurn svo
sterka, að ekki sakar að fara, um meltingarfæri dýranna. Sum fræ spíra jafnvel
fljótar eftir slíkt ferðalag en ef þau hefðu setið kyrr heima. Til dæmis má
nefna að hrafnarnir éta krækiberin og flytja þannig fræin oft langar leiðir.
Þótt hinn nýi jarðvegur sé rakur, er ekki svo að skilja, að þar sé lífvænt
öðrum háplöntum en þeim, er eigi eru sérlega sólgnar i vatn, eða þeim, er hafa
slíkan skapnað blaða, að þær geta temprað uppgufan vatnsins úr plöntulíkamanum.
Meðal hinna fyrstu plantna, er koma í hinn nýja mosajarðveg hraunsins, eru því
t. a. m. krækiberjalyng, móasef, axhæra, blásveifgras, sauðvingull, lógresi,
bugðupuntur, geldingalauf, heiðastör o.fl. o.fl. Í fyrstu eru innflytjendur
þessir fáir og dreifðir víðs vegar um mosaþembuna, einn og einn á stangli; en
með tímanum fjölga einstaklingarnir og fleiri plöntutegundir setjast að. Brátt
skipa plönturnar sér og í félög eftir þeim kröfum, sem þær gera til lífsins, og
félög þessi taka þau svæði í hrauninu, er þeim henta bezt. Þannig eru t a. m.
allstórar spildur þaktar venjulegum lynggróðri, er samsettur er af krækilyngi,
bláberja- og aðalbláberjalyngi, sortulyngi, beitilyngi, fjallhrapa, grávíði o.
þ. h., en á öðrum stöðum finnum vér grasgróður og vaxa þar hinar algengustu
grastegundir, er jarðvegurinn þar og nokkru rakari en í lyngheiðinni. Þessi
grastegundafélög eru vísir til grasgróðurs þess, er síðar skal getið. Sumstaðar
má og sjá vísi til jurtastóðs.
4. gróðrarstig.
A. Kjarr, skógur.
Smám saman fara að koma í ljós birkiplöntur hingað og þangað í
lyngheiðinni, og eftir því sem árin líða og jarðvegurinn eykst, dafnar birkið
betur og betur og verður að lokum kjarrskógur. Sé birkið ekki skemmt með
fjárbeit eða skógarhöggi, má óhætt fullyrða, að víða kemur fram reglulegur
skógur samsettur af trjám með beinum, óklofnum stofni. Innan um birkið vex
reynir, grávíðir og gulvíðir, og eru þá tegundir þessar venjulega svipaðar
birkinu að þroska. Hafa hraun þessi eflaust verið skógi vaxin í landnámstíð, þó
þess sé ekki beinlínis getið í sögunum, að því er mér er kunnugt.
Skóginn ber að skoða sem endatakmark að því er snertir gróðrarþróun á
stórum svæðum í hraununum, því að öðrum plöntufélögum veitir mjög svo örðugt
samkeppni við skóginn. Rætur trjáa og runna liggja svo djúpt í jörðu, að aðrar
plöntur geta öldungis ekki kept við skóginn að því er næringarefni jarðvegsins
snertir, og eigi skaðar það skóginn hið minsta, þótt skógarjarðvegurinn sé
alvaxinn lyngi eða grasi, því að þessar plöntur taka næringarefni úr hinum
efstu lögum jarðvegarins. Annað mál er það, að þéttur undirgróður í skógi getur
verið skaðlegur fyrir kímplöntur bjarkarinnar og fyrir ungt birki yfirleitt. Þá
gnæfir skógurinn og hátt yfir önnur plöntufélög og er því miklu betur settur að
því er sólarbirtu snertir, en án sólarljóssins geta grænar plöntur ekki lifað.
Það er því augljóst að skógurinn er einvaldur um langan aldur þar, sem hann
einu sinni er kominn, ef loftslag breytist ekki honum til skaða og ef engin
óhöpp vilja til. En óhöpp teljum vér, skoðað frá sjónarmiði skógarins,
skógarhögg, beit og yfirleitt allar árásir, er skógurinn verður fyrir af óðrum
eða öðru en keppinautunum.
B. Jurtastóð, graslendi.
Gróðursamfélag á leið af 3. og yfir á 4. gróðrarstig með aðstoð lúpínu. |
Þar sem nægilegt vatn er og hagkvæmt skjól kemur sérstakur gróður, er vér
köllum jurtastóð; í því plöntufélagi eru blómjurtir (þ. e. jurtir með stórum
litfögrum blómum) og burknar yfirgnæfandi, en auk þeirra vaxa þar ýmsar
grastegundir. Á endanum mun oftast svo fara, að blómjurtunum fækkar meir og
meir, en grastegundum fjölgar að því skapi, og að lokunum breytist jurtastóðið
í graslendi. Meðan jurtastóðið er upp á sitt hið bezta, eru blómjurtirnar
venjulega mjög þroskamiklar, en eftir því sem grösin ná meiri og meiri
yfirráðum, verða þær þroskaminni. Baráttan milli grastegundanna og blómjurtanna
getur verið langvinn, en óefað má fullyrða, að grastegundirnar sigra að lokum,
enda standa grastegundir betur að vígi en margar aðrar jurtir, sökum hinnar
kynlausu æxlunar.
Graslendið er fremur sjaldgæft í hraunum, og það er oss einkum kunnugt frá
helluhraununum t. a. m. Búðahrauni, Kapelluhrauni og Afstapahrauni. Til þess að
grasgróður geti þrifist er nauðsynlegt að regnvatnið hripi ekki niður úr
hrauninu, og er því ofur eðlilegt, að helluhraun hafi helzt graslendi. Í
Búðahrauni var grasgróðurinn yfirleitt samsettur af þessum fjórum tegundum:
snarrótarpunti, túnvingli, hálíngresi og bugðupunti, en auk þeirra voru ýmsar
aðrar tegundir strjálar hingað og þangað í graslendinu.
Auðvitað hittum vér og graslendi í apalhraunum, en þó ekki fyr en þau eru
alþakin jarðvegi.
___________
Þetta voru aðalatriðin í gróðrarsögu hraunanna, en þó á ekki hvert hraun
þessa gróðrarsögu, því að hraun til fjalla komast ekki lengra en á annað
gróðrarstigið, það er með öðrum orðum: mosaþemban heldur áfram að ríkja yfir
fjallhraunum, meðan loftslag ekki breytist. Það sem vér höfum sagt um
gróðrarþróun hraunanna á því sérstaklega við hraunin á láglendinu, en þó skal
þess getið, að hraun á yztu annesjum komast ekki lengra en á þriðja
gróðrarstigið, það er að segja, þau verða ekki skógi vaxin. Til dæmis má taka,
að Neshraun vestan við Snæfellsjökul er með öllu skóglaust, og ekki er getið um
skóg i hraununum utan til á Reykjanesskaganum.
Þá verður og fyrir oss sú spurning: hve langan tíma þarf hraunið til að
verða skógi vaxið? Þeirri spurningu getum vér ekki svarað að svo komnu, en þó
er það kunnugt, að hraun á láglendi verða fyr þakin gróðri en hraun til fjalla,
og orsakast það mest af því, að heitara er á láglendi en í fjöllum. Ch. Grönlund
hefir lýst gróðri í 150 ára gömlu hrauni við Mývatn, og, eftir því sem hann
segir, var sá gróður líkastur þeim, er vér kölluðum 1. gróðrarstig. Árið 1901
rannsakaði eg gróður í hraunum, sem brunnu 1783 (Eldhrauni og
Brunasandshrauni), og voru því 118 ára gömul. Þessi hraun eru á Suðurlandi, á láglendi, enda var
gróður þeirra á milli annars og þriðja stigs. Það er því augljóst, að það er
ekki komið undir aldri hraunsins, hve fljótt það grær upp, heldur undir þeim
lífsskilyrðum, sem fyrir hendi eru. Það eitt getum vér þó sagt, að hraunin
þurfa margar, margar aldir til að gróa upp.
___________
Vér gátum þess þegar í byrjun, að jarðvegurinn kæmi með ýmsu móti í
hraunin, en tíðast væri að plöntugróðurinn hefði mest að segja í því efni. Nú
höfum vér skýrt frá, hvernig plönturnar gera jarðveginn og vér gátum þess og,
að þær þyrftu margar aldir til þess starfa, en stundum getur jarðvegur komið í
hraunin á tiltölulega stuttum tíma; á það sér einkum stað þar sem sandfok er eða
öskufok. Vindurinn feykir sandi, jarðryki og ösku í hraunið, smám saman fara
glufur, gjótur og hraunbollar að fyllast og að lokunum hverfa jafnvel hæstu
hraunstrýturnar í sandinn. Þá fara plöntur smámsaman að taka sér bústað í
sandinum, og víða grær hann upp að lokum. Á þann hátt geta meðal annars komið
upp rýrar graslendur eða lynggróður. Sandfylltu hraunin eiga í aðalatriðunum
sömu gróðrarsögu og venjuleg sandjörð og skal því ekki farið frekara út í hana
hér. Sandfyllt hraun má finna á Reykjanesskaganum og sand- eða öskufylt hraun
eru á stórum svæðum fyrir vestan Heklu og norðan. Þannig eru stór svæði kringum
Skarðsfjall á Landi gömul hraun fyllt af sandi og ösku og t. a. m. bærinn
Fellsmúli stendur á þess háttar hrauni. Af hraununum norðan við Heklu má geta
Sölvahrauns.
II. Búðahraun.
[Seinni hluti greinarinnar ekki endurbirtur hér]
----
Greinin birtist í Skírni í apríl 1906, bls. 150-163. Hún var endurbirt að
stórum hluta á vefnum ferlir.is í september 2013, fallega myndskreytt. Því miður er hluta upprunalega textans sleppt á ferlir.is, án þess að um það sé getið. Jafnvel eru
setningar styttar og heilum setningum sleppt innan úr efnisgreinum. Þessi afbökun textans skrifast eflaust á fljótfærni hjá síðuhöldurum.
[*] Í dag er vitað að amerískur skógur þreifst á Íslandi þegar ísöld gekk í
garð. Af stærri trjám og runnum sem fundist hafa leifar um má nefna: elri,
hlyn, birki, risafuru beyki, hesli, magnólía, ösp og rósir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli