Í Rússlandi eru 20% af skógum heimsins, en markaðshlutdeild landsins á skógarafurðamarkaði á heimsvísu er minni en 4%.*
Í Svíþjóð vaxa minna en 1% af skógum heimsins, en þaðan koma engu að síður 5% af öllum skógarafurðum í heiminum og um 10% af heildarútflutningi skógarvara.* Í umfjöllun frá Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar um sænska skógrækt og timburframleiðslu er sýnd eftirfarandi mynd af barrskógabeltinu (e.
taiga / boreal forest, n.
boreal barskog). Á myndinni er Suðurlandsundirlendið talið til beltisins en í mörgum öðrum myndum af barrskógabeltinu er
Ísland ekki með. Stundum er Bretland talið til hluta af beltinu.
 |
| Úr myndbandi Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar. |
 |
| Af wikipedia.org. |
 |
| Af vef Marietta College í Ohio, marietta.edu. |
Hér fyrir neðan er myndband frá
Gísla Má Árnasyni af gerð 50 m göngubrúar um
Kárastaðastíg í þjóðgarðinum á Þingvöllum, úr íslensku timbri. sitkagreni úr Stálpastaðaskógi í Skorradal. Timbrið mun hafa fallið til í grisjun á 56 ára gömlum skógi, þar sem meðalhæð trjánna var 14-15 metrar.
state loggers from
Pétur Halldórsson.
Þessu tengt má benda á umfjöllun Haraldar Bjarnasonar í þættinum
Vafrað um Vesturland 6. jan. 2014. Þar er rætt við Valdimar Reynisson skógarvörð á Vesturlandi sem staðsettur er á Hvammi í Skorradal.***
 |
| Af vef Þingvallaþjóðgarðs. |
* Matvælastofnun SÞ: The future of Russia's forests, myndband: http://www.youtube.com/watch?v=YIZD_gDoMPw
** Sveriges lantbruksuniversitet:
Sustainable Forestry - the Swedish model, myndband: http://www.youtube.com/watch?v=D0uAIOT66Wo
*** Vafrað um Vesturland, myndband: www.youtube.com/watch?v=ykGsn6eBtx0